Hugmyndin að kokkakeppnunum varð til þegar Áslaug sá þáttinn “Junior Masterchef” á BBC Food í fjölvarpinu. Henni fannst að þetta hlyti að vera hægt að framkvæma í heimilisfræðikennslu og að krakkarnir gætu haft mikið gagn og gaman af.
Áslaug setti hugmyndina um kokkakeppni þegar í framkvæmd. Reglurnar sem urðu til þetta vor (2003) og allt skipulag keppninnar hefur svo haldið sér óbreytt frá fyrstu kokkakeppni Rimaskóla sem var haldin að vori árið 2004. Hún hefur verið haldin árlega síðan og skipar mikilvægan sess í starfi skólans. Rimaskólakeppnin verður því haldin í fimmta skiptið nú í vor.
Fagmenn úr matargeiranum hafa alltaf sinnt dómarastörfum og glæsileg verðlaun verið í boði. Menntasvið Reykjavíkur og fjöldi fyrirtækja styrkja keppnina (Rimaskóla og Reykjavíkur) og hafa gert frá upphafi en allur undirbúningur, söfnun styrktaraðila og skipulag hefur verið í höndum Áslaugar frá byrjun.
Metnaður og dugur hennar endurspeglast í krökkunum og eru allir sem að koma sammála um að það sé hreint stórkostlegt að sjá einbeitinguna, áhugann og tilþrifin sem þessir ungu matreiðslumenn og -konur sýna.