
Kokkakeppni grunnskóla verður haldin í Menntaskólanum í Kópavogi þann 12. apríl næstkomandi.
Því miður er ekki aðstaða fyrir meira en 24 skóla í keppninni. Þeir sem skrá sig fyrstir ganga fyrir og 14 pláss eru frátekin fyrir Reykjavíkurskóla þar sem Menntasvið Reykjavíkur er aðalbakhjarl keppninnar.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt þurfa að skrá sinn skóla til keppni fyrir 31. mars næstkomandi. Eftir það gildir þátttökuskráning ekki.
Ítarlegri skráning þar sem nöfn keppenda, í hvaða bekk nemendur eru, nafn kennara, uppskrift og heiti réttar koma fram þarf að berast eigi síðar en 7. apríl næstkomandi.
Skila þarf ítarlegri uppskrift með öllum leiðbeiningum og nákvæmri innihaldslýsingu og ekki er leyfilegt að nota hráefni í keppninni sem ekki kemur fram í uppskriftinni. Einnig er skylda að nota allt hráefni sem talið er upp í uppskrift.
Skólar mæta á keppnisdegi með allt sem þeir ætla að nota. Potta, pönnur, öll áhöld, skálar, allt hráefni, öll krydd og hvað eina sem þeir þurfa að nota til að elda keppnisréttinn.
Borð eru með hvítum dúk og fær hver skóli hálft 6manna borð til afnota. Gefinn er tími fyrir keppni til að skreyta og leggja á borð að hætti hvers keppnisliðs og skólarnir þurfa að leggja allt sitt hráefni til sjálfir.
Gestir fá ekki aðgang að keppnissvæði, eingöngu fjölmiðlar og dómarar en gestir geta fylgst með dómurum að störfum eftir að keppendur hafa skilað réttum sínum fram á borð.
Nánari upplýsingar koma síðar en hægt er að hafa samband við Áslaugu Traustadóttur í síma 8932216 eða með tölvupósti aslaugtrausta@rimaskoli.is